Eldri fréttir.....
5/12/2003 - Skírnarveisla
Við skruppum til Växjö í Svíþjóð í skírnaveislu hjá Hannesi
frænda Stefán og Ninný. Þau voru að skíra fyrsta barnið, myndarlega
stúlku sem fékk nafnið Tinna. Það er dálítil keyrsla frá Osló til
Växjö en Skódinn stóð sig vel (að vanda)! Sjá nokkrar myndir hér.

1/9/2003 - Jötunheimar
Í lok ágúst var Margrét á Íslandi, en Stefán, Guðrún Jóhanna (sem
kom frá Danmörku) og Brúskur notuðu tækifærið og héldu í gönguferð í
Jötunheima. Þetta var alveg frábær ferð, gott veður og falleg
náttúra. Sjá myndir og stutta ferðasögu
hér.

19/7/2003 - Björgvin
Stefán byrjaði að vinna í Björgvin
í síðustu viku. Þrátt fyrir að í Björgvin séu
regnhlífarsjálfsalar á hverju götuhorni var sól og blíða alla síðustu
viku og hitinn yfir 30 stig. Í Osló hefur verið einmuna blíða og
eiginlega allt of heitt fyrir okkur sem erum vön blautum júlímánuði í
Reykjavík.
Hér að neðan er svo mynd sem var tekin í Oslo í lok júní.

8/7/2003 - Myndir
Ýmsar nýjar myndir á sumarmyndasíðunni,
m.a. myndir frá Danmörku,
þar sem við vorum í sumarhúsi í eina viku í lok júní.

15/6/2003 - Gestagangur
Það hefur verið og verður gestkvæmt hjá okkur í Noregi, Sirrý var í
heimsókn 7-18. júní og nú er Þorsteinn
með okkur, fékk heimsóknina í fermingargjöf. Í næstu viku koma
svo Olgeir og Jóhanna í heimsókn og stefnan er að kíkja til Danmerkur.
Við erum annars búin að bardúsa eitt og annað. m.a. fara í Tusenfryd
skemmtigarðinn og (reyna) að kenna Brúski að synda! Sjá nokkrar myndir
hér.

17/5/2003 - Þjóðhátíðardagurinn 17. maí í Noregi
Það er haldið uppá þjóðhátíðardaginn með pompi og prakt í Noregi.
Allt byrjar þetta með "frokost" eða morgunmat og svo fara margir í
bæinn og horfa á skrúðgönguna ganga framhjá höllinni þar sem konungurinn
stendur í 3 tíma og vinkar! Sjá annars nokkrar nýjar myndir á myndasíðunni.

18/4/2003 - Páskamyndir 2003
Sirrý hefur verið í heimsókn hjá okkur páskavikuna. Það hefur
verið sól og blíða í Osló og sannkallað vorveður. Við höfum
verið dugleg við að hafa það gott, búin að fara tvisvar út að borða og
á skíði á Norefjell á föstudaginn
langa. Sjá nokkrar myndir á páskamyndasíðunni
okkar.

7/4/2003 - Myndir frá Hemsedal
Við vorum á skíðum í Hemsedal í
Noregi 9. - 16. mars. Við vorum mjög heppin, það var sól og blíða
allan tímann, nægur snjór, gott skíðafæri og aðstaðan í Hemsedal gefur
Ölpunum lítið eftir. Með okkur voru Guðrún og Dennis sem komu frá
Danmörku og Georg og Katrín Ólöf sem komu frá Íslandi. Sjá nokkrar
myndir hér.....og enn fleiri myndir hér.
2/03/2003 - Orkuskortur í Noregi
Það hefur verið orkuskortur hérna í Noregi í vetur því öll orkan
var flutt út til Svíþjóðar síðastliðið sumar og svo rigndi minna en
venjulega nú í haust. Norðmenn deyja þó ekki ráðalausir heldur
skreppa bara útí skóg og höggva við í eldinn - eitthvað sem þýðir
víst lítiið að reyna heima á Fróni. Gallinn er öll mengunin, í
froststillunum hérna í Osló er loftið gjarnan eins og á áramótabrennu.
Brúskur okkar hefur hins vegar verið
mjög hrifinn af þessu tiltæki og lætur ekki sitt eftir liggja heldur ber
heim spýtur í eldinn í hvert skipti sem hann fær tækifæri til.

9/02/2003 - Jóhanna í heimsókn
Jóhanna var í heimsókn hjá okkur í nokkra daga í byrjun
febrúar. Hún fór m.a. í heimsókn í skólann í skóginum (Lutvann),
þar sem krakkarnir eru reknir út á gönguskíði og látnir elda hafragraut
yfir opnum eldi. Spurning hvort þetta eigi erindi til Íslands? Nokkrar myndir á myndasíðu.
31/12/2002 - Jóla- og áramótamyndir
Norðmenn halda uppá áramótin á svipaðan hátt og Íslendingar, borða
góðan mat, skjóta upp flugeldum og fara út að skemmta sér. Við
höfum þó ekki heyrt um þann sið að halda áramótabrennur, slíkt
tíðkast víst frekar á þrettándanum. Sjá nokkrar myndir
hér.
Það hefur verið indælt veður yfir hátíðarnar, snjór en kalt og frostið hefur farið niður fyrir 20°. En þar sem það er enginn
vindur þá er þetta ekki jafn kalt og ætla mætti. Guðrún og Georg
voru í heimsókn yfir jólin, við skruppum á skíði á jóladag og
borðuðum íslenskt hangikjöt.
17/11/2002 - Heimsókn
Sirrý var í heimsókn hjá okkur um
daginn, sjá nokkrar myndir á myndasíðu.
20/10/2002 - Snjókoma
Það snjóaði heilmikið í Osló í nótt, svo vonandi verður hægt að
opna skíðasvæðið við Holmenkollen
fljótlega. Annars gengum við þar í nágreninu í gær og ég gæti vel
trúað að göngubrautirnar opnuðu í mánuðinum ef það helst kalt.

14/10/2002 - Ferðalag í Aurdal
Við vorum að koma úr mjög skemmtilegu ferðalagi í Aurdal, sem
er fjallaþorp um 170 km frá Osló. Hér má sjá nokkrar myndir og
stutta ferðasögu.
6/10/2002 - Sultugerð
Helgin fór að miklu leyti í sultugerð. Ótrúlegt en satt þá vaxa
plómur í Noregi og nágrannarnir voru í vandræðum með uppskeruna þetta
árið. Við fengum því gefins 5 kíló af plómum sem við sultuðum. Þetta var merkileg upplifun fyrir okkur Frónbúa....að
ekki þurfi að fara alla leið til Spánar til að tína plómur.

14/9/2002 - Sundkennsla
Í dag héldum við áfram að kenna Brúski að synda. Hann vill ekki
blotna á maganum og því þarf að halda á honum útí sjó til að fá hann
til að taka sundtökin. Sjá nánar á myndasíðu.
14/9/2002 - Verðlag í Noregi
Verðlagið í Noregi er efni í langa sögu. Hvernig fólk fer að því
að versla í matinn og keyra jafnframt um á dýrum bílum skiljum við ekki
ennþá. Hérna er nýjasti strimillinn okkar
úr Rimi, gaman væri að vita hvað sambærilegt myndi kosta í Bónus.
This page was last updated on 20-02-2005.
Contact: stefan@bruskur.com
|